Um okkur

Sagan
okkar

Múrmann ehf. var stofnað árið 2022 af Frímanni Gústaf Frímannssyni. Fyrirtækið hóf starfsemi sem eins manns rekstur en hefur vaxið hratt og í dag starfa sex manns hjá fyrirtækinu.

Áhugi Frímanns á faginu hófst árið 2014 þegar hann byrjaði að starfa við múrverk. Árið 2015 hóf hann nám í múraraiðn og lauk sveinsprófi árið 2017. Hann lauk síðar meistaraprófi í múraraiðn árið 2025. Í náminu gekk hann undir viðurnefninu „Múrmann“, sem síðar varð innblásturinn að nafni fyrirtækisins.

Múrmann ehf. tekur að sér fjölbreytt verkefni á sviði múrverks, steypuvinnu, fasteignaviðhalds og vélslípunar á bílaplönum. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð, góð samskipti og endingargóðan frágang í hverju verkefni.

Gæði, heiðarleiki og áreiðanleg þjónusta eru ávallt í fyrirrúmi. Við leggjum jafnframt ríka áherslu á að vera aðgengileg viðskiptavinum okkar og svara fyrirspurnum hratt og vel.

Hafa samband

Fyrirtækið

Múrmann ehf. leggur sérstaka
áherslu á fasteignaviðhald og
hefur það að markmiði að skila
faglegri og endingargóðri vinnu.

Þjónusta

Tökum að okkur fjölbreytt
verkefni á sviði múrverks,
steypuvinnu og vélslípunar
á bílaplönum.

Hafa samband

Bugðufljót 17c,
270 Mosfellsbær
(+354) 776-5056
frimann@murmann.is


Opnunartími

Mán–Fös: 08:00–17:00

Hafðu samband og við
svörum eins fljótt og auðið er.