Múrverk og steypuviðgerðir með vönduðum frágangi

Múrmann ehf. sérhæfir sig í múrverki, steypuviðgerðum, fasteignaviðhaldi og vélslípun.

Við tökum að okkur bæði smærri og stærri verkefni og leggjum áherslu á vandaðan undirbúning, fagleg vinnubrögð og endingargóðan frágang.

Við gerum við – endurnýjum – og klárum verkið.

Viðgerðir og filtun á tröppum

Skemmdar tröppur fengu nýtt líf án þess að þurfa að rífa þær upp.
Laus efni voru fjarlægð, tröppurnar endurmúraðar með trefjastyrktum múr og lokafrágangur unninn með filtmúr og slípun.
Fyrri verkHafa samband

Svalir lagfærðar

Skemmdar þaksvalir voru farnar að leka niður í bílskúrinn. Skemmdir hlutar voru fjarlægðir og svalirnar endursteyptar. Að lokum var svalagólfið pússað og málað til að tryggja vandaðan og endingargóðan frágang.
Um okkurHafa samband

Bílaplan með snjóbræðslu

Um 400 m² bílaplan var steypt og vélslípað með innbyggðu snjóbræðslukerfi til að tryggja vandaða og endingargóða lausn.
Fá tilboðHafa samband

Okkar
þjónusta

Múrmann ehf. tekur að sér fjölbreytt verkefni á sviði múrverks, steypuvinnu og vélslípunar á bílaplönum. Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á fasteignaviðhald og hefur það að markmiði að skila faglegri og endingargóðri vinnu í hverju verkefni. Hjá Múrmann ehf. eru gæði, heiðarleiki og góð þjónusta alltaf í fyrirrúmi. Múrmann hefur einn góðan kost fram yfir alla aðra iðnaðarmenn, hann svarar alltaf símanum

Image

Fyrirtækið

Múrmann ehf. leggur sérstaka
áherslu á fasteignaviðhald og
hefur það að markmiði að skila
faglegri og endingargóðri vinnu.

Þjónusta

Tökum að okkur fjölbreytt
verkefni á sviði múrverks,
steypuvinnu og vélslípunar
á bílaplönum.

Hafa samband

Bugðufljót 17c,
270 Mosfellsbær
(+354) 776-5056
frimann@murmann.is


Opnunartími

Mán–Fös: 08:00–17:00

Hafðu samband og við
svörum eins fljótt og auðið er.